01.01.12
Gleðilegt nýtt ár.
Kennsla hefst:
- Laugardaginn 7. janúar 2012 í Reykjavík
- Þriðjudaginn 10. janúar í Kópavogi (engin kennsla laugardaginn 7. janúar í Kópavogi)
Nemendur eiga að mæta á sömu tímum og áður.
Nýir nemendur gjörið svo vel að staðfesta skólavist í síma 698 4960.
Frekari upplýsingar í síma 698 4960 eða asta@balletskoli.is
Dönsum og brosum inn í birtuna.
Nýárskveðjur
Ásta
03.09.11
Mánudaginn 5. sept. verður opið hús í Skipholti 35 milli kl. 16 og 19. Þá er gott tækifæri fyrir nýja nemendur að kynnast skólanum. Sýningarkennsla verður í kennslusalnum, vídeó frá síðustu nemendasýningu o.fl. Staðfesting á skólavist fer einnig fram þennan dag í skólanum og fer hún fram með greiðslu námsgjalda. Tökum engin kort en hægt er að greiða rafrænt eða með gíró. Verið velkomin
15.08.11
Innritun á haustönn 2011 er hafin. Innritun og upplýsingar eru á vefsíðu skólans eða í síma 5884960.
25.04.11
Vornámskeið í balletleikskóla og forskóla fyrir 3-5 ára. Kennt er á laugardögum eða miðvikudögum. Námskeiðin hefjast 16. apríl og 27. apríl.
Vornámskeið fyrir 11-15 ára framhaldsnemendur. Kennsla hefst þriðjudaginn 26. apríl.
Nánari upplýsingar asta@balletskoli.is eða í síma 5884960
30.03.11
Miðvikudaginn 6. apríl eru tvær sýningar í Borgarleikhúsinu, kl 18:30 og kl 20:10.
6 ára forskóli úr Kópavogi og Reykjavík sýnir á fyrri sýningunni kl 18:30.
Allir aðrir nemendur þ.e. frá 7. ára aldri sýna á báðum sýningunum.