Tilkynningar

30.03.11

Nemendasýning 2011

Miðvikudaginn 6. apríl eru tvær sýningar í Borgarleikhúsinu, kl 18:30 og kl 20:10.

6 ára forskóli úr Kópavogi og Reykjavík sýnir á fyrri sýningunni kl 18:30.

Allir aðrir nemendur þ.e. frá 7. ára aldri sýna á báðum sýningunum.

18.02.11

Nemendasýning 2011

Vetrarstarfi skólans lýkur með nemendasýningu í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 6. apríl.

Nemendur skólans frá 6 ára aldri taka þátt.

Æfing og sýning eru samdægurs.

  • Æfingin er síðdegis og sýningin um kvöldið. 

Nánari tímasetningar og  upplýsingar verða sendar út þegar nær dregur.

Aðgöngumiðar verða seldir í skólanum frá 30. mars.

04.01.11

Kennsla hefst aftur ….

 

Gleðilegt ár. Vona að jól og áramót hafi verið ánægjuleg :-)

Kennsla hefst aftur laugardaginn 8. janúar 2011. Nemendur mæti á sömu tímum og áður.  Nýir nemendur staðfesti  skólavist í síma 698-4960 eða á netinu.

 Mánudaginn 10. janúar hefst kennsla hjá 8 ára og eldri.

Ásta Björnsdóttir, skólastjóri.

14.12.10

Jólafrí ….

Jólafríið er til 8. janúar nk.

Skráning á vorönn 2011 er hafin. Innritun á vefnum eða í síma 588-4960.

Gleðileg jól …. http://elfyourself.jibjab.com/view/wIrB0yG8XKmDFkSu?cmpid=ey_fb_self

Kennarar skólans í jólastuði :-)

07.09.10

Kennsla hefst ….

Kennsla hefst miðvikudaginn 8. september í Reykjavík og Kópavogi. 

Í Skipholtinu í Reykjavík byrja:

  •   þriggja ára nemendur kl. 15:30,
  • 4-5 ára kl 16:15
  •  7-8 ára  kl 17:10
  • ==================================================

Í Íþróttahúsi Breiðabliks í Smáranum:

  • 4-5 ára kl. 16:10

Verið velkomin í ballet og dönsum með bros á vör :-)