2006 september

01.09.06

Skólastarfið byrjar

Jæja, þá er komið að því. Skólastarfið byrjar 9. sept. 2006, bæði í Reykjavík og í Kópavogi. Balletleikskóli þ.e. 3 ára börn er eingöngu í Skipholtinu í Reykjavík en forskóli 4-6 ára börn bæði í Kópavogi og í Reykjavík. 7-9 ára börn er kennt bæði í Reykjavík og í Kópavogi. 9 ára og eldri eru bara í Reykjavík.

Nýir nemendur athugið.
Staðfesting skólavistar fer fram miðvikudaginn 6. september með greiðslu skólagjalda í Skipholti 35 Reykjavík.

Börn 3-6 ára kl. 16:00 – 18:00
Börn 7 ára og eldri kl. 18:00 -20:00

Hlakka til að hitta ykkur öll með bros á vör og fiðring í tánum !?

Bestu kveðjur,
Ásta.