2008 ágúst

20.08.08

Veturinn 2008-2009

Ágætu nemendur og foreldrar.

Nú er sumarið brátt á enda og þá er tími til kominn að fara að taka nokkur spor.
Innritun stendur nú yfir bæði fyrir byrjendur og framhaldsnemendur í síma 567 8965 eða með tölvupósti á netfangið: asta@balletskoli.is.

Staðfesting á skólavist nemenda í Reykjavík og Kópavogi fer fram með greiðslu skólagjalda í Skipholti 35 mánudaginn 8. september.
Nemendur 3-6 ára kl. 16:00-18:00.
Nemendur 7 ára og eldri kl. 18:00-20:00.
Vegna niðurröðunar á stundaskrá er æskilegt að nemendur hafi samband við skólann sem fyrst. Skólinn er aðili að Frístundakorti ÍTR.

Í vetur verða ný námskeið í söngleikjadansi og jazzballet fyrir nemendur frá 11 ára aldri.

Á næstu dögum fá allir nemendur skólans sendan bækling með upplýsingum um komandi skólaár.

Balletkveðjur,
Ásta Björnsdóttir skólastjóri.