2012 september

06.09.12

Kennsla hefst á laugardaginn 8. september

Byrjum á laugardaginn í Reykjavík og Kópavogi. Balletleikskóli, forskóli og 7 ára nemendur.

 

Hittumst með bros á vör 🙂

 

Ásta og Hafdís Björk.

03.09.12

Opið hús fimmtudaginn 6. sept.

Fimmtudaginn 6. sept. verður opið hús í Skipholti 35 milli kl. 16 og 18. Þá er gott tækifæri fyrir nýja nemendur að kynnast skólanum. Sýningarkennsla verður í kennslusalnum, vídeó frá síðustu nemendasýningu o.fl. Staðfesting á skólavist fer einnig fram þennan dag í skólanum og fer hún fram með greiðslu námsgjalda. Tökum engin kort en hægt er að greiða rafrænt eða með gíró.  Verið velkomin :-)