2013 apríl

25.04.13

Vornámskeið fyrir 3-5 ára börn

Haldið verður 6 tíma vornámskeið. Kennt er á laugardögum.

Námskeiðið hefst laugardaginn 27. apríl.

Skemmtilegt námskeið bæði fyrir byrjendur og framhald.

Nánari upplýsingar í síma 698 4960 eða asta@balletskoli.is

18.04.13

Myndir – Nemendasýningin 2013 í Borgarleikhúsinu

Erum mjög ánægð með sýninguna í Borgarleikhúsinu sem haldin var 17. apríl 2013.

Hér eru myndir sem Rut hjá Ljósmyndum og list tók.

http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10151623692954359.1073741828.277104469358&type=1

07.04.13

Nemendasýning 2013

Vetrarstarfi skólans lýkur með nemendasýningu í Borgarleikhúsinu miðvikudaginn 17. apríl.

Nemendur skólans frá 6 ára aldri taka þátt.

Æfing og sýning eru samdægurs. Sýningar eru kl. 18:30 og kl. 20:15.

Aðgöngumiðar verða seldir í skólanum Skipholti 35 frá 8. apríl kl. 16:00.
============= Ath. tökum ekki kort ============