Námskeiðið hefst laugardaginn 18. apríl.
Skemmtilegt námskeið bæði fyrir byrjendur og framhald. Balletleikskóli (3 ára) og balletforskóli (4-5 ára).
Nánari upplýsingar í síma 698 4960 eða asta@balletskoli.is.

Kennsla fellur niður á laugardaginn 14. mars vegna ömurlegrar veðurspár.
Sjáumst hress næsta laugardag 🙂
Vetrarstarfi balletskólans lýkur með nemendasýningu í Borgarleikhúsinu 28. apríl 2015. Þar sýna nemendur frá sex ára aldri ávöxt vetrarstarfsins.
Æfing og sýning eru samdægurs. Miðar verða seldir frá 20. apríl í skólanum. Nánari upplýsingar þegar nær dregur.
Sýningin í ár er tileinkuð konum í tilefni 100 ára afmælis kosningaréttar kvenna á Íslandi. Einnig viljum við tileinka sýninguna öllum þeim fjölda kvenna sem hafa stundað nám í skólanum á síðustu áratugum.
Skólinn er kominn í páskafrí mánudaginn 30. mars og opnar aftur þriðjudaginn 7. apríl.
Nemendur æfa nú af kappi fyrir sýninguna og er spenna og tilhlökkun í loftinu.
Nemendasýning er mikilvægur þáttur í balletnámi. Lærdómurinn felst ekki síst í undirbúningnum og umbunin er sýningin.